Pælingar um persónutengsl

14.10.2007

Einkamal.is

Flokkað undir: Almennt

Ok, ok. ég verð eiginlega að setja mig í einhvern gír til að geta skrifað færslu sem verður ekki bara kjánaleg.

ok, komið.

Hver er menningin bakvið einkamal.is? Verður alltaf bara einhver asnalegur kjánastimpill á þessu eða er þetta fyrirbæri komið til að stækka?
Ég get skilið hugmyndina um að kynnast öðrum og fara á stefnumót og svona. Þeir sem þekkja mig vita að ég er mikill áhugamaður um persónutengsl og hvernig fólk kynnist, en eru bara of miklir undirliggjandi samfélagsfordómar gagnvart þessu fyrirbæri til að maður geti horft á þetta í réttu ljósi.

Í sjálfu sér er þetta mjög hreinn og beinn vefur. Þú leitar að einhverjum sem uppfyllir þínar kategoríu um hvernig persónu þú vilt kynnast, hvort sem það sé strákur, stelpa, gamall, ungur, samkynhneigður, gagnkynhneigður o.s.frv. Síðan skoðar þú upplýsingar um þá og ákveður hvort þú viljir henda á þau skilaboð. Í sjálfu sér mjög einfalt. Þú hef ég reyndar ekki lengri reynslu í þessu nema það að geta skoðað upplýsingar hjá öðrum. Ég veit ekki hvernig svona skilaboð fara fram en maður ætti að geta sagt sér að þetta virki í sjálfu sér svipað og myspace message eða eitthvað þvíumlíkt.

Nú, þá komum við að því að við erum náttúrulega á internetinu. Og maður er ekkert endilega alltaf maður sjálfur á internetinu. Á irkinu í gamla daga þá gat maður alltaf verið aðeins hærri, aðeins grennri og aðeins eldri til þess að líta vel út í gegnum spjallborðið. Hver segir að þetta sé ekki ennþá svona? Er allt þetta fólk þarna inni að segja satt? Það hlýtur nú að vera að einhverju leyti, því vissulega er fólk þarna sem finnst þetta kannski betri leið til að kynnast einhverjum, og er í raun og veru að reyna að hitta hinn eina rétta. Og ef þú lýgur að hinum eina rétta í byrjun sambands þá er það ekkert endilega vísir á gott framhald.

Nú er “online-dating” í Bandaríkjunum frekar stórt fyrirbæri. Það er til fullt af fólki sem notast við síður eins og www.match.com og www.singles.com
til þess að kynnast í fólki í þeirri risastóru stórborg sem það á heima í hverju sinni. Er þetta spurning um tímasparnað eða þægindi? Fólk sem vantar að fara á stefnumót þarf ekki að fara út úr húsi í von og óvon um að það geti mögulega hitt einhvern, heldur smellir það bara inn auglýsingu og tada! Nokkrum tímum seinna er kannski einhver áhugasamur sem virðist vera áhugaverður tilbúinn að hittast. Það er náttúrulega ekki hægt að toppa það í þægindum. Þarft ekki einu sinni að fara út úr húsi.

Síðan eru það nöfnin og auglýsingarnar sem fólk setur upp. Eins og vinkona mín orðaði það, hver skírir sig hornysex með það í huga að kynnast einhverjum sem hefur gaman af skíðum? Hvað er ég ekki að skilja? Eða gellan sem elskar kærastann sinn en er samt með auglýsingu inn á einkamal.is því henni leiðist? Hvernig væri að tjékka á misbrestum í sambandinu fyrst? Eða stelpan sem er venjuleg og skemmtileg samkvæmt lýsingunni sinni en ákveður samt að skíra sig Ingahorny? Hvað er eiginlega í gangi hérna?!?

Ef fólk er svona ótrúlega “hresst & skemmtilegt” af hverju er það ekki bara að hitta fólk í gegnum gamla mátann? Hvað er undirliggjandi sem ég er ekki að sjá? Er ég kannski bara svona mikill efasemdarmaður að ég geti ekki treyst þessum vef?

Eða er maður bara hræddur við að kynnast einhverjum sem endar á því að vera frænka manns….

Skoðanir »

The URI to TrackBack this entry is: http://bjoggi.blogsome.com/2007/10/14/einkamalis/trackback/

Engar skoðanir ennþá

RSS feed for comments on this post.

Skildu eftir skoðun

Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>























Get free blog up and running in minutes with Blogsome
Theme designed by Hadley Wickham